Psalms 105

1Þakkið Drottni, ákallið nafn hans, gjörið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna! 2Syngið fyrir honum, leikið fyrir honum, talið um öll hans dásemdarverk. 3Hrósið yður af hans helga nafni, hjarta þeirra er leita Drottins gleðjist. 4Leitið Drottins og máttar hans, stundið sífellt eftir augliti hans. 5Minnist dásemdarverka hans, þeirra er hann gjörði, tákna hans og refsidóma munns hans, 6þér niðjar Abrahams, þjónar hans, þér synir Jakobs, hans útvöldu. 7Hann er Drottinn, vor Guð, um víða veröld ganga dómar hans. 8Hann minnist að eilífu sáttmála síns, orðs þess, er hann hefir gefið þúsundum kynslóða, 9sáttmálans, er hann gjörði við Abraham, og eiðs síns við Ísak, 10þess er hann setti sem lög fyrir Jakob, eilífan sáttmála fyrir Ísrael, 11þá er hann mælti: Þér mun ég gefa Kanaanland sem erfðahlut yðar. 12Þegar þeir voru fámennur hópur, örfáir og bjuggu þar útlendingar, 13þá fóru þeir frá einni þjóð til annarrar og frá einu konungsríki til annars lýðs. 14Hann leið engum að kúga þá og hegndi konungum þeirra vegna. 15,,Snertið eigi við mínum smurðu og gjörið eigi spámönnum mínum mein.`` 16Þá er hann kallaði hallæri yfir landið, braut í sundur hverja stoð brauðsins, 17þá sendi hann mann á undan þeim, Jósef var seldur sem þræll. 18Þeir þjáðu fætur hans með fjötrum, hann var lagður í járn, 19allt þar til er orð hans rættust, og orð Drottins létu hann standast raunina. 20Konungur sendi boð og lét hann lausan, drottnari þjóðanna leysti fjötra hans. 21Hann gjörði hann að herra yfir húsi sínu og að drottnara yfir öllum eigum sínum, 22að hann gæti fjötrað höfðingja eftir vild og kennt öldungum hans speki. 23Síðan kom Ísrael til Egyptalands, Jakob var gestur í landi Kams. 24Og Guð gjörði lýð sinn mjög mannmargan og lét þá verða fleiri en fjendur þeirra. 25Hann sneri hjörtum Egypta til haturs við lýð sinn, til lævísi við þjóna sína. 26Hann sendi Móse, þjón sinn, og Aron, er hann hafði útvalið, 27hann gjörði tákn sín á þeim og undur í landi Kams. 28Hann sendi sorta og myrkvaði landið, en þeir gáfu orðum hans engan gaum, 29hann breytti vötnum þeirra í blóð og lét fiska þeirra deyja, 30land þeirra varð kvikt af froskum, alla leið inn í svefnherbergi konungs, 31hann bauð, þá komu flugur, mývargur um öll héruð þeirra, 32hann gaf þeim hagl fyrir regn, bálandi eld í land þeirra, 33hann laust vínvið þeirra og fíkjutré og braut sundur trén í héruðum þeirra, 34hann bauð, þá kom jarðvargur og óteljandi engisprettur, 35sem átu upp allar jurtir í landi þeirra og átu upp ávöxtinn af jörð þeirra, 36hann laust alla frumburði í landi þeirra, frumgróða alls styrkleiks þeirra. 37Síðan leiddi hann þá út með silfri og gulli, enginn hrasaði af kynkvíslum hans. 38Egyptaland gladdist yfir burtför þeirra, því að ótti við þá var fallinn yfir þá. 39Hann breiddi út ský sem hlíf og eld til þess að lýsa um nætur. 40Þeir báðu, þá lét hann lynghæns koma og mettaði þá með himnabrauði. 41Hann opnaði klett, svo að vatn vall upp, rann sem fljót um eyðimörkina. 42Hann minntist síns heilaga heits við Abraham þjón sinn 43og leiddi lýð sinn út með gleði, sína útvöldu með fögnuði. 44Og hann gaf þeim lönd þjóðanna, það sem þjóðirnar höfðu aflað með striti, fengu þeir til eignar, 45til þess að þeir skyldu halda lög hans og varðveita lögmál hans. Halelúja.
Copyright information for Icelandic